Αθανάσιος kirkjufaðir ólst upp í Alexandríu í Egyptalandi og naut ágætrar menntunar. Hann vígðist djákni árið 318 og gerðist ritari hjá Alexander, sem var biskup í borginni. Sem slíkur fylgdi hann biskupi á fyrsta almenna kirkjuþingið, sem var haldið í Níkeu 325. Aríusarvilla kom til sögu 319, og Aþanasius talaði gegn henni á þinginu, sem einnig snérist gegn henni, og varð þá til Níkeujátningin, sem síðan hefur verið mikilvægur grundvöllur. Alexander dó 328, og þá var Aþanasius kjörinn biskup í Alexandríu og 20. patríarki egypzku kirkjunnar. Því miður tókst ekki að kveða niður Aríusarvillu á þinginu, og einkum reyndist hún eiga skjól við keisarahirðina. Af þeirri ástœðu sætti Aþanasius ofsóknum, jafnvel hervaldi, og varð alloft í 45 ára biskupsdómi sínum að fara í útlegð, samtals í mörg ár, en á meðan var reynt að setja andstœðinga hans á biskupsstólinn. Það var ekki fyrr en almenningur í Alexandríu loks gerði uppreisn 366 og krafðist þess að fá biskupinn sinn til baka, að þessum hremmingum linnti. Kannski hefur enginn biskup jafn oft þurft að svara fyrir kenningu sína, og ævinlega reyndist hann boða trúna hreina. Hér eru ekki efni til að rekja þessa stormasömu kirkjusögu. Aþanasius var sem traustur brimbrjótur, og þess njóta kristnir menn nú og á öllum öldum. En hann er enn gagnrýndur, einkum hjá Gyðingum (sjá til dœmis hér, texti frá 1901) en einnig sumum öðrum frœðimönnum, sem kjósa að treysta bezt fornum andstœðingum hans. Við þennan heilaga patríarka er kennd Aþanasiusarjátningin (sjá hér, hér og hér; samin undir áhrifum af kenningu hans, frekar en hann hafi ritað hana sjálfur). Hann ritaði margt, einkum um trúvörn og guðfrœði, sem er sígild lesning. Og einkar gott er að lesa ævisöguna, sem hann ritaði um vin sinn, heilagan Antonius, en hjá honum leitaði biskup stundum skjóls á útlegðarárum sínum. Heilagur Aþaníusar var útnefndur kirkjufrœðari 1568. Messudagur hans er í rómversk-kaþólsku kirkjunni 2. maí (dauðadagur patríarkans; hans einnig minnzt á þeim degi í ensku biskupakirkjunni og lutherskum kirkjum), í flestum orþódoxum kirkjum 18. janúar og í koptísku kirkjunni 15. maí (þann dag 1973 kom helgur dómur hans til Egyptalands, hafði lengi verið á Ítalíu, en Páll VI. páfi ákvað að senda hann heim).
Í koptísku kirkjunni er haldin hátíð til minningar um kraftaverk, sem Drottinn gerði á heilögum Aþanasiusi: Þegar Constantius keisari játaðist undir Aríusarvilluna [eða afbrigði af henni], sendi hann mann að nafni Gawargios til Alexandríu, til að yfirtaka biskupsembættið, og með honum fóru 500 riddarar, sem áttu að drepa fólkið, ef það tœki ekki við þessari kenningu. Fáir játuðu henni, og margir voru drepnir, en Aþanasius stökk í útlegð. Eftir sex ár fór hann hins vegar til Constantinopel og gekk fyrir keisarann, krafðist þess að verða aftur settur í embætti sitt eða fá að líða píslarvætti. Constantius lét þá flytja hann út í bátkænu og á haf út, án matar, drykkjar eða hjálparmanns, til að hann sálaðist úr hungri og þorsta eða drukknaði, án þess að vera beinlínis drepinn. En Guð lét engla sína fœra biskupi mat og drykk og bátinn ná til Alexandríu á þremur dögum. Þegar hinir trúuðu sáu þetta, glöddust þeir og tóku á móti honum með kertum og lofsöngvum, fylgdu honum til kirkju og ráku Gawargios og fylgismenn hans á burt (sjá hér).
Þegar Athanasius dó, vakti yfir honum djákni að nafni Tímoteus, sem sá erkiengilinn Mikjál koma og taka sál biskupsins, sem hafði á sér sömu mynd og líkaminn, og bera hana upp til himins. Á þeirri stundu sá hann einnig fjölda engla og heyrði þá þakka Guði fyrir að gera sína heilögu dýrðlega.
Verk eftir heilagan Aþanasius má meðal annars finna hjá: 1) Bibliothek der Kirchenväter, 2) Christian Classics Ethereal Library, 3) Documenta Catholica Omnia, 4) Eternal Word Television Network, 5) New Advent, 6) Newman Reader og 7) Paul Halsall.
Bargellini, Piero @ Santi, beati e testimoni
Benedictus XVI (ávarp 20. júní 2007)
Bright, William (1890)
Budge, Ernest Alfred Wallis (1915)
Bush, Robert Wheler (1888)
Butler, Alban @ Sacred Texts Archive
Cavallera, Ferdinand (1908)
Christian Cyclopedia @ The Lutheran Church, Missouri Synod
Clifford, Cornelius @ The Catholic Encyclopedia (1907)
Coptic Orthodox Church Network
Dictionnaire de Théologie Catholique
Davis, Glenn @ The Development of the Canon of the New Testament
Forbes, Frances Alice (1919)
Friedrich-Alexander-Universität, Erlangen-Nürnberg
Hieronymus (87. kafli)
Hoss, Karl (1899)
Jones, Terry @ Star Quest Production Network
Kaye, John (1853)
Kiefer, James @ Anglican Resource Collection
Marlowe, Michael @ Bible Research
Möhler, Johann Adam (1844)
Odden, Per Einar @ kaþólska kirkjan í Noregi
Pell, G. A. (1888)
Reynolds, Henry Roberts (1889)
Sierves de los Corazones Traspasados de Jesús y María
Stadlers Vollständiges Heiligenlexikon
Stülcken, Alfred Johann Friedrich (1899)
Voigt, Heinrich (1861)
West, Aaron @ Fourth-Century Christianity
Wikipedia (enska)
Wikipédia (franska)
Wikipedia (hollenzka)
Wikipedia (ítalska)
Wikipédia (portúgalska)
Wikipedia (spænska)
Wikipedia (þýzka)
Zima, Jeremy @ Fourth-Century Christianity
Færðu inn athugasemd