Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for the ‘Suðvestur-Asía’ Category

                  Ófullgert, undervejs, not finished Messudagur og dauðadagur Hieronymusar er 30. septem­ber. Í Martyro­log­ium Rom­an­um stend­ur: “In Bethlehem Iudæ de­positio sancti Hiero­nymi Presbyt­eri, Con­fessoris et Ecclesiæ Doctor­is, qui, omn­ium studia litter­ar­um adept­us ac probat­or­um Monach­or­um imitator fact­us, multa hæresum monstra gladio suæ doctrinæ confodit; demum, cum ad de­crepit­am usque vixiss­et ætatem, in pace [...]

Read Full Post »

                      Heilög Barbara er helzt kennd við borg í Biþyníu, sem hét Nicomedia (nú Izmit í Tyrk­landi). Í orþó­dox­um kirkj­um er þó frem­ur nefnd Helio­polis í Sýr­landi (nú Baal­bek í Líb­anon). Messu­dag­ur henn­ar og dauða­dag­ur er 4. desem­ber, og ár­tal­ið er oft haft 306. En sam­­tíma­­heim­­ild þekk­­ist ekki um þenn­an písl­ar­vott, svo [...]

Read Full Post »

          Matteus og Markús guðspjallamenn nafn­greindu Tadd­eus í upp­taln­ingu á post­ul­un­um (Mt 10.­3; Mk 3.­18). Í hinni latn­esku Vúlgötu er not­uð orð­mynd­in Thadd­aeus (sjá hér og hér). Lúkas guð­spjalla­mað­ur hafði ekki það nafn en taldi hins veg­ar Júdas Jakobs­son (Lk 6.­16; P 1.­13). Lít­ill vafi þyk­ir, að all­ir eigi við sama post­ula, því að [...]

Read Full Post »

      Algengast mun að álíta heilagan Jóhann­es fœdd­an ár­ið 347, sem er reikn­að ár­tal en ekki full­víst, og nokkr­um ár­um skakk­ar að áliti sumra höf­unda. Hann ólst upp í stór­borg­inni Antiochia ad Oront­em (nú Antakya í Tyrk­landi suð­aust­an­verðu). Þeg­ar Jó­hann­es var ung­barn, dó fað­ir hans, her­for­ing­inn Secund­us, en ekkj­an Anthusa ól son þeirra upp [...]

Read Full Post »

          Βασίλειος fœddist í borginni Caesarea Mazaca í hér­að­inu Cappa­dociae í Litlu-Asíu (nú Kayseri í miðri Ana­toliu í Tyrk­landi). For­eldr­ar hans hétu Basil­íus og Emme­lia, og bæði voru þau tek­in í heil­agra manna tölu ásamt fimm börn­­um sín­um og móð­ur hans, en fað­ir Emmeliu varð písl­ar­vott­ur. Basil­íus yngri naut ágætr­ar skóla­göngu, bæði í Kon­stantín­ópel [...]

Read Full Post »

       Versin 1-19 í 9. kapítula Postulasög­unn­ar hljóða svo: En Sál blés enn ógn­um og mann­dráp­um gegn læri­svein­um Drott­ins. Gekk hann til æðsta prests­ins og beidd­ist bréfa af hon­um til sam­kund­anna í Dam­ask­us, að hann mætti flytja í bönd­um til Jerú­sal­em þá, er hann kynni að finna og væru þessa veg­ar, hvort held­ur karla [...]

Read Full Post »

               Verk Páls og Teklu er bók, sem Heilagur Hiero­nym­us (d. 420) nefndi í De Viris Illustri­bus og áleit apo­krýfa, því að at­burð­anna væri í engu get­ið í Post­ula­sög­unni. Hann álykt­aði, að Lúkas hefði átt að þekkja þá, ef sann­ir væru. Auk þess hafi Tertulli­an­us (d. um 220) sagt frá presti nokkr­um í [...]

Read Full Post »

        Margir en ekki allir frœðimenn álíta, að þessi post­uli hafi heit­ið fullu nafni Natanael Bar­tolmai (Natan­ael son­ur plœg­inga­manns­ins; en of lang­sótt er sú forna út­legg­ing, að nafn­ið þýði son­ur Tholomeus­ar, nefni­lega ein­hvers af Egypta­lands­kon­ung­um með því nafni). Í sam­stofna guð­spjöll­un­um og Post­ula­sög­unni er hann að­eins að finna í upp­taln­ingu á post­ul­um og kall­ast [...]

Read Full Post »

                       Inni í þessari stóru kirkju eru Golgata, gröf Krists og fleiri helgir stað­ir. Á efstu mynd­inni hér að ofan er klefi und­ir háu hvolf­þaki. Hann er byggð­ur yfir þann stað, sem gröf Krists var á (Sepulchre of Jesus). Á næstu mynd eru tröpp­ur upp að Golgata. Þær eru [...]

Read Full Post »

        Filippus er í samstofna guðspjöllun­um og Post­ula­sög­unni sagður einn af hin­um tólf (Mt 10.3; Mk 3.18; Lk 6.14; P 1.13), en fleira grein­ir frá hon­um hjá guð­spjalla­mann­in­um Jó­hann­esi. Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filipp­us og sagði við hann: “Fylg þú mér!” Filipp­us var frá Betsaidu, sömu borg [...]

Read Full Post »

Eldri færslur »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.