Á bœ þeim, er að Reykjum heitir, var mungát gert á móti Páli biskupi þetta sumar sem víða annars staðar, og kveikjur voru lagðar undir mungátsefni og allt vandlega til búið. Þá gerði ekki við taka, og voru kveikjurnar ónýtar raunar. Varð þá hversvetna í leitað síðan, þess er í hug kom, og kom þó ekki gerð í mungátið, og skipti það dœgrum mjög mörgum, er svo búið stóð. Og þótti þá flestum nær sýnt, að allt mundi ónýtast. Þá hét húsfreyjan, er allt ábyrgðist í, á hinn sæla Þorlák biskup, að hann skyldi á nokkurn veg leiðrétta þeirra mál. En er hún hafði heitið, þá kom þegar gerð í kerin góð og nóg, og varð það hið bezta mungát. Og þótti sú hin fegursta jartein vera þeim mönnum, er kunnleikur var á.
Reykir í Ölfusi. Kveikjur: Ölger, venjulega fljótandi og búið til úr síðustu lögun.
Þessi kafli er hluti af Jarteinabók Þorláks biskups frá 1199.
Færðu inn athugasemd